Gran Canaria

Æfingaferð ÆGIR3
25. febrúar til 4. mars 2027

Skráning opnar eftir

Í stuttu máli

  • Æfingaferð til Gran Canaria 25. febrúar til 4. mars 2027, 7 nætur.
  • 40 sæti í boði, aðeins fyrir meðlimi ÆGIR3.
  • Flug með Icelandair.
  • Gisting á Abora Buenaventura, 4 stjörnu hóteli á Playa del Inglés. Morgunmatur innifalinn.
  • 239.900 kr. á mann í tvíbýli, 271.400 kr. í einbýli.
  • Hjóla-, sund- og hlaupaæfingar með þjálfurum.
  • Skráning opnar mánudaginn 2. nóvember kl. 20:00.

Heil vika af hjóli, sundi og hlaupi.

ÆGIR3 skipuleggur æfingaferð til Gran Canaria dagana 25. febrúar til 4. mars 2027, þar sem við æfum saman í toppaðstæðum.

Á Gran Canaria er yfirleitt sólríkt og hlýtt, og á þessum tíma árs er eyjan okkar besti möguleiki á sólskini.

Það eru 40 laus sæti í ferðina og því er ekki hægt að skrá aðila sem eru ekki í ÆGIR3. Hægt er að skrá sig í félagið á Sportabler.

Hópur ÆGIR3 á hjólum

Fyrir hverja er ferðin?

Sem þumalputtaregla þá henta æfingaferðir með ÆGIR3 þeim sem stunda æfingar með félaginu, hvort sem það eru nýir meðlimir eða gamlir. Ef þið mætið reglulega á æfingar í vetur þá er þessi ferð fyrir ykkur.

Hópnum hefur iðulega verið skipt í 2 getustig þar sem partur af hópnum hjólar lengra og hinn styttra. Þessir tveir hópar fá fulla leiðsögn frá þjálfurum ÆGIR3. Þjálfarar munu sjá um það að raða fólki í hópa.

Búast má við því að hjóladagar séu frá 3–6 klukkutímum í lengd og þá frá 60–120 km með töluverðri hækkun. Séu aðilar í ferðinni sem ráða ekki við þessa túra mun þeim standa til boða að fá styttri leiðir í hjólatölvur sem eru þá án sérstakrar leiðsagnar þjálfara.

Það er engin krafa að hafa farið í æfingaferð áður, en þetta er hins vegar ekki ferð til að taka sín fyrstu skref á götuhjóli, sem og að læra á nýja tækni eins og smellupedala.

Þetta kann að hljóma sem svolítið erfitt prógram en það má hafa í huga að við erum jafn mikið að þessu til þess að hafa gaman eins og að komast í form. Dagarnir eru langir en á lágu álagi svo það er heldur betur hægt að njóta þess að æfa í fallegu landslagi og góðu veðri.

Verð

239.900 kr.

á mann í tvíbýli

271.400 kr.

á mann í einbýli

Tvíbýli

Best er að vita fyrir skráningu með hverjum þið viljið deila herbergi. Þau sem skrá sig í tvíbýli án herbergisfélaga reynum við að para saman, en ef það gengur ekki þarf að uppfæra í einbýli.

Innifalið í verði

  • Flug með Icelandair
  • 1 innrituð taska (23 kg)
  • Handfarangur
  • Gisting í 7 nætur
  • Morgunmatur
  • Akstur til og frá flugvelli
  • Skipulagðar hjóla-, sund- og hlaupaæfingar

Flug

Við fljúgum með Icelandair.

Fimmtudagur 25. febrúar 2027

Keflavík til Gran Canaria

FI 96610:00–15:25

Fimmtudagur 4. mars 2027

Gran Canaria til Keflavík

FI 96716:30–22:00

Greiðsla og skilmálar

  • Staðfestingargjald50.000 kr. á mann. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt.
  • LokagreiðslaÞarf að berast eigi síðar en 7 vikum fyrir brottför.
  • NafnabreytingÁn kostnaðar þar til 6 vikum fyrir brottför. Eftir það kostar 15.000 kr. að breyta nafni.
Sundlaugin á Abora Buenaventura með hótelbyggingunum í baksýn

Abora Buenaventura by Lopesan Hotels

Nútímalegt 4 stjörnu hótel á Playa del Inglés með björtum herbergjum, svölum og sundlaugum. Morgunmatur er innifalinn.

Hótelið er vel staðsett í miðjum bænum, með fjölda verslana, kaffihúsa og veitingastaða í stuttu göngufæri. Það er því auðvelt að fá sér kaffi eftir æfingu eða fara út að borða á kvöldin.

Garðurinn og sundlaugarnar séð ofan frá
Herbergi með svölum
Verönd við sundlaugina
Morgunverðarhlaðborð

Hálft fæði

Hægt er að bæta við hálfu fæði við innritun á hótelinu. Hótelið gat ekki staðfest verðið en áætlar um 16 € á mann fyrir hverja nótt.

Leiga á hjólum

10%

afsláttur af leiguhjólum hjá Life On 2 Wheels

Lok febrúar er háannatími og bókanir eru þegar farnar að berast. Fyrstur kemur, fyrstur fær, svo bókið sem fyrst til að tryggja hjól í réttri stærð.

  1. Bókið í gegnum bókunarformið

    Þið fáið 10% afslátt af verðinu á vefnum þeirra, en aðeins ef þið bókið í gegnum þetta bókunarform.

  2. Setjið kóðann í reitinn fyrir hóp (Group)

  3. Akstur frá hótelinu

    Leigan skipuleggur akstur frá hótelinu í búðina þar sem hjólin eru afhent.

Hægt er að taka eigið hjól með í flugið gegn 23.800 kr. gjaldi, en plássið er mjög takmarkað, að hámarki 10 hjól. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Er þetta öruggt?

Í æfingaferðum sem þessum velja fararstjórar eftir fremsta megni eins öruggar leiðir eins og hægt er m.v. veður, umferð og aðrar aðstæður. Við erum meðvituð um að það er mikill munur á getu og reynslu fólks og högum okkur eftir því.

Allir bera ábyrgð á eigin öryggi í æfingaferðinni, þar með talið á búnaði eins og hjóli og hjálmi.

Hjólreiðamaður í hárnálabeygju milli furutrjáa með fjöll í baksýn

Fararstjóri og þjálfarar

Hörður á hjóli á fjallvegi á Gran Canaria

Hörður

Fararstjóri og leiðsögumaður

Hörður hefur verið að hjóla á spænskum slóðum síðan 2014. Árið 2018 skipulagði hann fyrstu æfingaferð ÆGIR3 og hafa þær síðan verið haldnar árlega við mjög góðar undirtektir.

Hann hefur verið í ÆGIR3 síðan 2016 og sat lengi í stjórn félagsins, síðasta árið sem formaður. Honum finnst fátt skemmtilegra en að sjá fólk gera hluti á hjólinu sem það hefði aldrei trúað að það gæti, sigra sjálft sig og svo aftur næsta dag.

Þórunn Margrét og Finnur

Þjálfarar

Tótu og Finn ættu flestir Ægiringar að þekkja vel. Tóta er yfirþjálfari félagsins og Finnur situr í stjórn, þar sem hann er formaður ásamt Guðbjörgu. Ásamt því að leiðsegja á hjólinu sjá þau um hlaupa- og sundæfingar í ferðinni.

Hópur ÆGIR3 fagnar uppi á fjalli

Skráning

Skráning opnar mánudaginn 2. nóvember kl. 20:00 og í ferðinni eru 40 sæti. Forskráið ykkur núna og þá farið þið beint í skráninguna þegar hún opnar.

Skráning opnar eftir 0daga 00klst. 00mín. 00sek.

Nafnið birtist á listanum yfir forskráða hér á síðunni. Netfangið birtist hvergi og er aðeins notað til að halda utan um skráninguna.

Skráningin er kláruð á bókunarvef samstarfsaðila okkar.